13.5.2008 | 19:32
Hvers vegna ekki í hesthúsi, skóla eða húsbíl
Þá má nú segja að trúin sé alltaf nálakt sér í lagi þar sem andlát á sér stað. Fólk lifir ekki dauðan af án trúar og það er yfirlýsingin.
Ef dauði er ekki trúarlegur, hvers vegna var þessi athöfn í hesthúsi, skóla, eða húsbíl...
|
Fyrsta útförin á vegum Siðmenntar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |

baenamaer
enigma
davidwunderbass
jaxlinn
mcfrikki
zeriaph
jogamagg
enoch
jonvalurjensson
vonin
muggur37
robertthorh
siggisig
svanurg
vefritid





Athugasemdir
Það eru til látlaust húsnæði sem er ekki kirkja...En Guð verður alltaf með í dauðanum. Guð verður ekki fjarlægður. Bara greftrunin ein er í sköpun Guðs. Sá sem deyr án Guðs hvílir í sköpun hans jörðinni...
Það flýr engin Guð, en það er vissulega hægt að neita tilvist hans fram í dauðan síðan tekur Hann við.
Eiríkur Ingvar Ingvarsson, 13.5.2008 kl. 20:28
Þú og þínir líkar Eiríkur verðið að vera vissir um það að það sé ástæða fyrir því að "Guðs-hús" var valið. Þið getið á engan hátt skilið það að það skiptir engu máli hvaða hús er notað þar sem ekkert hús, frekar en nokkuð annað, tengist ýminduðum vini ykkar á neinn hátt.
Í stað þess að sýna svona augljóslega eigin ótta og óvissu með því að ráðast á fólk sem er ekki að fela sig á bak við þennan ímyndaða vin með gríni, háði og leiðindum. Hvernig væri þá að slappa aðeins af, láta duga að hafa sínar eigin skoðannir og leyfa öðrum að lifa ...og deyja í friði.
Án þess að fullyrða um að það sé annað og meira en það er.
Arnar Ingi Richardsson (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 01:49
Eiríkur
Guð býr í kirkju? í hvaða trúarbrögðum er því haldið fram og hvar? þannig að eingöngu þeir sem að notast við kirkju sem "guðshús" lifa með guði? satt að segja þá er þessi athugasemd álíka illa upplýst og ljósastauralaus göngustígur aðfaranótt 24 des. ég er sjálfur trúaður en dytti ekki í hug að skilgreina guð eftir þessum manngerða takmörkunarkassa um dýrð sem að þú virðist notast við. og hvað þá fyrir annara hönd. guði (samkvæmt minni skilgreiningu) gæti ekki verið meira skítsama hvort að látinn maður sé kvaddur í kirkju eða sundlaug. enda ef jafn stórkostlegur og sögurnar segja eflaust mun rólegri yfir allskonar smáhlutum en við mennirnir. honum er meira að segja sama þó að þú gerir honum upp vilja og skoðanir. og það að þú troðir þeim uppá aðra.
Sævar Daníel (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 01:59
Hvers vegna ekki í hesthúsi? Finnst þér þetta smekklegt komment?
Vésteinn Valgarðsson, 14.5.2008 kl. 03:36
Ástæðurnar fyrir því að bænhúsið var notað voru eftirfarandi:
1) Ósk aðstandenda.
2) Sú einfalda staðreynd að Siðmennt á ekkert húsnæði, fær enga styrki frá yfirvöldum (ólíkt öllum trúfélögum) og getur því ekki boðið upp á sérstakar aðstæður.
Mér þykir óþarfi af fólki hér að gera lítið úr hinum látna og aðstandendum hans af því að Siðmennt fer í taugarnar á því.
Komið fram við aðra eins og þið viljið að aðrir komi fram við ykkur.
Sigurður Hólm Gunnarsson (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 10:08
Varðandi Smekklegheit...Mér var hugsað til ljósmyndaþáttar sem ég tók í Frakklandi fyrir um 4 árum, þar sem margir legsteinar voru skreyttir hestamyndum og hesthúsum...Annað gekk mér ekki til
En talandi um smekkleg heit, að afneita Guði af fullum krafti og láta syngja yfir sér í Bænahúsi og jarða sig í vígðri mold...Ég ætla ekki að gefa þessu smekk stig en þetta skýtur nú dálítið skökku við sannfæringu manna, ekki satt.
Siðmennt fer ekki í taugarnar á mér og ekki gerði ég lítið úr þeim látna með nokkrum hætti. En það sem ég var að benda á var tvöfeldnin í gjörningnum.
Siðmennt er ekki trúfélag samkvæmt þeim sjálfum og ætti því ekki að fá styrki sem trúfélag. Það eru ekki lög um ekkitrúfélög.
Ég óska aðstandendum samúðar.
Eiríkur Ingvar Ingvarsson, 14.5.2008 kl. 15:27
Það má vera að hluti af garðinum sé óvígður...en sköpun Guðs er bæði vígð og helguð og verður Guð því ekki umflúin í þessu máli sem öðru.
Það að fara kynna sér þetta má er einungis til að æra óstöðugan. Það að ekkert vit í þessu...
Eiríkur Ingvar Ingvarsson, 15.5.2008 kl. 22:52
Umrætt bænahús er ekki kirkja og hvorki eign Þjóðkirkjunnar eða nokkurs safnaðar. Bænahúsið er eitt af þremur þjónustuhúsum Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma (KGRP) þar sem útfarir fara fram. KGRP er þjónustufyrirtæki í eigu þriggja sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Reykjavíkur, Kópavogs og Seltjarnarnesbæjar. Þjóðkirkjan eða "kirkjuyfirvöld" standa ekki að KGRP. KGRP fær svo hlutdeild af kirkjugarðsgjöldum sem er skattur sem allir landsmenn greiða.
Það væri auðvitað í hæsta máta óeðlilegt ef KGRP gæti ekki liðsinnt öllum íbúum þessara sveitarfélaganna um útfararþjónustu hvort svo sem fólk vill hafa útför með trúarlegu yfirbragði eða ekki.
Bænahúsið er ekki "kristið" húsnæði á sama hátt og kirkja, frekar en t.d. elliheimili þar sem messað er á sunnudögum. Auðvitað fer meira fyrir táknmyndum kristinna en annarra í bænahúsinu enda meirihluti útfararathafna með kristilegum hætti.
Þessi útför á vegum Siðmenntar er alveg ábyggilega ekki fyrsta ekki-kristilega útförin í útfararhúsum KGRP, enda ekki til siðs að fólk fari með lík sinna nánustu á kaffihús eða í hesthús!
En eins og þú segir: "Það að fara kynna sér þetta má er einungis til að æra óstöðugan"... Einkunnarorð margra bloggara.
Einar Karl, 17.5.2008 kl. 10:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.