Endaþarmur íslenskrar blaðamennsku fékk verðlaunin í ár.

Endaþarmur íslenskrar blaðamennsku fékk verðlaunin í ár. Kemur það svo sem ekki á óvart.

Um leið og ég óska Jóhanni til hamingju með verðlaunin sem hann er klárlega vel að komin rifja ég upp fyrir sjálfum mér og öðrum að endaþarmur er nauðsynlegur, og það er rétt að benda handhafa þessara mætu verðlauna á að menn ráða miklu um hvað vellur úr honum...


mbl.is Jóhann fékk blaðamannaverðlaunin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég fór á salernið þegar þetta var í tíma...

Gerum kröfur um íslensku og landafræði kunnáttu blaðamanna...


mbl.is Tveir höfnuðu utan vegar í Fagradal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru að fara á hausin hvort sem er...er það þjóðhagslega hagkvæmt?

Þekki aðeins til þessarar keðju. Reyndar mín uppáhalds sérvöruverslun og nýt þess að fara í þessa búð. Hvernig sem er að í desember var svo komið að hillur voru hálf tómar og stemmdi ekki í annað en gjaldþrot...þar sem við hjónin vorum í Flórída fundust ekki neinar Íslenskar vörur í allri búðinni. Mega þeir því mín vegna hætta að selja vörur sem ekki eru í boði. Því er að hvort sem er þjóðhagslega hagkvæmt að halda áfram hvalveiðum þrátt fyrir þetta bréf.

Hvet menn til að skoða skráninguna á Bloomberg....


mbl.is Hætta að kynna íslenskar vörur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rauða Höndin

Inntak þessarar fréttar er baktjalda stjórnmál ISG. Sjáum við á morgun frétt í Baugs miðlum um Rauðu Höndina í sama magni og um þá Bláu sem var þó þjóðinni holl.
mbl.is Ingibjörg Sólrún kom boðum til Sigurbjargar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver hefur rétt fyrir sér....

Ekki allir fjölmiðlar búa við það að vera í eigu aðila sem einnig eiga mjög ríka aðra hagsmuni en blaðaútgáfu. Ekki eru allir fjölmiðlar heldur í herferð fyrir einhverjum baráttumálum, hvort sem er eigenda sinna eða starfsmanna. Einn fjölmiðill, viðskiptavefurinn T24.is, sem er í eigu og undir ritstjórn Óla Björns Kárasonar og Jónasar Haraldssonar, bendir til dæmis oft á eitt og annað sem hinum þykir ekki áhugavert.

Á dögunum rifjaði vefurinn upp nýlegt efni úr viðskiptahluta Fréttablaðsins. Um síðustu áramót valdi dómnefnd á vegum blaðsins bæði viðskiptamann nýliðins árs og þrjú bestu viðskipti ársins. Viðskiptamaður ársins var valinn Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformaður Stoða. Þrenn bestu viðskipti ársins voru valin sala Novators á búlgarska símanum, ICESAVE-reikningar Landsbankans og hlutafjáraukning Baugs Group í FL Group.

Dómnefnd skipuðu flestir úrvalsmenn landsins. Má þar fræga telja Ólaf Ísleifsson, Ágúst Einarsson, Eddu Rós Karlsdóttur, Jón Þór Sturluson, Vilhjálm Egilsson, Höllu Tómasdóttur og Þórð Friðjónsson ásamt nokkrum öðrum sem standa þeim skammt að baki.

Hér eru á ferð virtir hagfræðingar sem full ástæða er til að séu sem oftast í viðtölum til að vísa veginn út úr kreppunni, enda flestir ef ekki allir í dómnefndinni sem sáu allt fyrir, eins og hagfræðingar almennt munu nú hafa gert flestir.

Það er eingöngu af fórnfýsi sem allir hagfræðingarnir og fræðimennirnir sem sáu allt fyrir, stilltu sig um að notfæra sér spádómsgáfu sína til að hagnast sjálfir meðan tækifæri var til og þeir skildu það sem öllum öðrum var hulið


mbl.is Stjórn IMF fjallar um Ísland 5. nóvember
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borgarnesræða Ingibjargar Sólrúnar

Hér er tengill á ræðuna og hér fyrir neðan er umdeildasti kaflinn úr henni:

Í efnahags- og atvinnumálum hljótum við líka að leiða til öndvegis leikreglur hins frjálslynda lýðræðis. Okkur kemur ekkert við hvað þeir heita sem stjórna fyrirtækjum landsins eða hvaða flokki þeir fylgja að málum. Gamlir peningar eru ekkert betri en nýir. Ef ketti er ætlað að veiða mýs þá má einu gilda hvort hann er svartur eða hvítur – svo lengi sem hann gegnir sínu hlutverki. Í atvinnu- og efnahagslífinu eru það umferðarreglurnar sem gilda og þær eiga að vera skynsamlegar og í þágu alls almennings. Stjórnmálamennirnir bera ábyrgð á leikreglunum en leikendur bera ábyrgð á því að fara eftir þeim. Það má leiða að því rök að afskiptasemi stjórnmálamanna af fyrirtækum landsins sé ein aðalmeinsemd íslensks efnahags- og atvinnulífs. Þannig má segja að það sé orðstír fyrirtækja jafnskaðlegt að lenda undir verndarvæng Davíðs Oddssonar eins og það er að verða að skotspæni hans. Ég vil þannig leyfa mér að halda því fram að það hafi skaðað faglega umfjöllun um Íslenska erfðagreiningu, bæði hérlendis og erlendis, að sú skoðun er útbreidd að fyrirtækið njóti sérstaks dálætis hjá forsætisráðherranum. Það vekur upp umræðu og tortryggni um að gagnagrunnur fyrirtækisins og ríkisábyrgðin byggist á málefnalegum og faglegum forsendum en ekki flokkspólitískum. Sama má segja um Baug, Norðurljós og Kaupþing. Byggist gagnrýni og eftir atvikum rannsókn á þessum fyrirtækjum á málefnalegum og faglegum forsendum eða flokkspólitískum? Ertu í liði forsætisráðherrans eða ekki – þarna er efinn og hann verður ekki upprættur nema hinum pólitísku afskiptum linni og hinar almennu gegnsæju leikreglur lýðræðisins taki við. Þetta er verkefni Samfylkingarinnar. Samfylkingin á að vera óháð öllum helstu eignahópunum í samfélaginu, hún á að gæta almannahagsmuna, ekki sérhagsmuna.

Í fjármálum, fyrirtækjarekstri, fjölmiðlum og sveitarstjórnarmálum á Íslandi er ennþá spurt: Í hvaða liði ertu? Ertu í náðinni hjá stjórnarráðinu eða ekki? Þessu verður að linna, við verðum að losna við hina sjálfmiðuðu, stjórnlyndu valdsmenn. Við verðum að endurvekja traust almennings á stofnanir samfélagsins með nýjum leikreglum, nýju inntaki, nýrri ímynd. Þetta er hlutverk Samfylkingarinnar.


Jafnrétti vinstrimanna hvar er Sóley nú

"Um daginn var kosinn nýr forseti Alþýðusambands Íslands. Í framboði var að þessu sinni kona, þrautreynd í verkalýðshreyfingunni og raunar varaforseti Alþýðusambandsins. Einhverra hluta vegna heyrðist aldrei orð um það opinberlega að nú gæfist verkalýðshreyfingunni raunhæft færi á að velja konu til forystu. Hvergi var tekið viðtal við hefðbundnar baráttukonur kvennahreyfingarinnar um hvað það væri nú mikilvægt að að kona yrði kosin og slæm „skilaboð til kvenna“ ef það yrði ekki gert. Eftir kosninguna, þegar konunni sem gegndi embætti varaforseta var hafnað sem forseta, er ekki sagt eitt einasta orð um það í fréttum eða stjórnmálum að þetta sýni að „konum sé ekki treyst“, eins og jafnan heyrist þegar kona nær ekki þeim árangri sem hún vildi, til dæmis í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins.

Hér spilar vitaskuld ekki inn í að Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, sem tapaði fyrir skrifstofumanni Alþýðusambandsins, er sterklega grunuð um að vera sjálfstæðismaður. Það er auðvitað ekki ástæðan fyrir því að skyndilega hefur enginn áhyggjur af því að „kona tapaði“ hjá Alþýðusambandinu og engum fannst fyrir kosninguna áríðandi að fá „konu til ábyrgðar“. Eftir kosninguna þykir engum sem tap Ingibjargar sýni að Alþýðusambandið „treysti ekki konum“. Sú skýring á tapi kvenna á líka bara við annars staðar."


Þessu línuriti verður að halda til haga..

Upplýsandi...smellið á myndina x2

Línurit


mbl.is Jákvæður fundur í London
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gestapó og Þýskaland

Ég nældi mér í heimildamynd um Gestapó í dag ekki að það komi málinu við með beinum hætti en þetta var söguleg heimild um það tangarhald sem Gestapó hafði á Þýskalandi undir stjórn Hitlers og hans áróðursmeistara.

Það sem mér þótti athygli vert var að á meðan Þýskaland brann þá hélt almenningur áfram að trúa á þriðja ríkið í gegnum áróðursvél Hitlers.

Mér leið eins og Þjóðverja...trúði að allt væri í lagi og ekki aðeins það heldur að við værum að sigra heiminn og síðar sólkerfið með herkænsku okkar. Sú trú var studd vel smurðri áróðursvél. Síðan kemur í ljós að þeir miðlar sem helstir voru í því að telja okkur trú um að allt væri í lagi, þar voru helstu eigendur bankar. Auðvita voru bankar líka helstu lánadrottnar.

Það sem hér er um að ræð er það sama. Hér voru menn ekki að segja frá því sem skemmdi málstaðin...Stríðið er okkar og við stjórnum upplýsingunum...Þjóðin trúir.

 


mbl.is Bankaskýrsla undir stól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Almenningur á Íslandi borgar brúsan

Það verður sem sagt þannig að almenningur borgar brúsann???

Hér er fyrsti framtíðarvíxill landsmanna Útgefandi Fjárglæframenn..Greiðandi skattgreiðendur.

 


mbl.is Samkomulag náðist við Holland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband